|
|
10.05.2008 19:18:56 / brabra
»
06.05.2008 14:57:07 / brabra
Það er nú meira fyrirtækið að dröslast upp og niður þessar tröppur hérna í Munkanum. Gerði nú ekki alveg ráð fyrir þessu þegar ég var að kaupa þetta, ekki mjög barnvænt. Þegar við förum út að hjóla þarf ég að byrja á því að fara niður með hjólið, (þó bara niður neðri tröppurnar) skilja drenginn eftir inni í öruggum aðstæðum fara svo upp aftur og sækja hann. Þegar ég kem svo heim þarf ég að fara að af hjólinu og labba með drenginn upp þessar tröppur allar saman, setja hann á góðan stað, fara aftur niður og ganga frá hjólinu. Meira fyrirtækið að búa á 2. hæð, sömu sögu er að segja þegar ég þarf að fara niður með kerruna.... eins gott að maður sé búinn að vera í ræktinni non stop frá áramótun, að halda á 10 kg barni upp og niður hérna er bara ekkert auðvelt fyrir 9% öryrkja 
Það er draumur okkar hjónaleysa núna að fá bílskúr, þá mun þetta allt saman leysast Einar getur bónað bílinn og ég geymt allar kerrurnar, vagninn og hjólið.
Annars er lítið annað að frétta en útivera allan daginn, maður er bara svo hugmyndasnauður að mér dettur ekkert í hug hvað ég á að gera allan daginn, drengurinn er ekki beint ánægður að hanga heima með mig hérna í tölvunni 
Pepsi er drykkurinn
kv. Tinna og Krummi krútt
»
01.05.2008 13:54:42 / brabra
Fyrir nákvæmlega ári síðan var ég farin upp á spítala með verki, var send heim, konur með 1 í útvíkkun fá enga samúð ! Það leið ekki á löngu þar til ég sagði við Einar ég get þetta ekki lengur hérna heima, reyndi þó að fá mér að borða tók verkjatöflu og allt þetta. Leið og beið, mín að drepast úr verkjum en bara með 1 í útvíkkun, shit var þetta grín. Þetta var sko þúsund sinnum verra en ég bjóst við. Nenni nú ekki að fara nánar í þetta, svoldið mikið í móki því ég var svo sárkvalin næstu tímana.
kl 11:42 NÆSTA DAG !! fékk ég svo drenginn í fangið eftir langa baráttu við hríðarnar. Fæðingin var ekki erfið miðað við þessar ógeðis hríðar. Ég bara trúi því ekki að það sé liðið ár síðan, trúi því ekki að litli strákurinn minn sé að verða eins árs... ég er svo ánægð með strákinn minn. Skemmtilegasta ár sem ég hef upplifað og jafnt fram frekar erfitt svona fyrstu 5 mánuðina. Vikurnar svo fljótar að líða, stubburinn alltaf að stækka og þroskast. Læra e-ð nýtt - það er allt svo gaman. Alveg yndislegt að eiga barn, það færir manni ótrúlega mikla gleði. Já ég er örlítið á væmnu nótunum hérna ég horfi stundum á hann og hugsa, hvernig er hægt að elska einhvern svona mikið?? alveg sama hvað hann gerir af sér í framtíðinni, þá mun maður alltaf elska hann.
Krummi fæddist sem sagt 2. maí kl 11:42 árið 2007. Á laugardaginn 3. maí ætlum við að vera með afmæli í Hlíðargerðinu, held ég sé búin að bjóða öllum, vonandi er ég ekki að gleyma einhverjum, það er alveg líkt mér eins og ég er þessa dagana 
Sjáumst kv. Tinna mamma
»
29.04.2008 22:32:36 / brabra
BA - ritgerðin verður klárlega um skúrana á Akureyri !! áhugavert mál. Hérna þykir bara ansi töff og sniðugt að kaupa sér svona trékofa úr Byko eða Húsasmiðjunni og planta honum á lóðina. Helvíti fínt svona fyrir dekkin og hjólin. Án gríns þá held ég að þetta sé e-ð trend hérna, svo þykir líka töff að byggja sér pall þó maður sé ekki á jarðhæð, þá eru bara settar súlur upp og pallur ofan á - snilldin ein... Mér liggur við uppköstum En svona án gríns, nú er bara að fara að skrifa BA ritgerðina og massa skólann. Hlakka massa mikið til dagmömmumálin alveg að verða klár held ég. SOnur minn verður 1 árs á föstudaginn, eigum við að ræða það e-ð? Nýtt blogg á fimtudag ef veður leyfir. Farin að lúlla mér
»
21.04.2008 20:46:21 / brabra
Sýningin var massa flott hjá krökkunum, eflaust finnst fólki skemmtilegra að skoða fatahönnun, vöruhönnun og fleira því það er áþreyfanlegra og skiljanlegra fyrir marga en mér fannst þvílíkt gaman að skoða verkefnin hjá krökkunum í arkitektúr, stóðu sig nokkuð vel flest vel sett upp og mjög PRO. Það var líka ansi gaman að sjá krakkana, hafði ekki séð flesta síðan ég var kasólétt. Svoldið svona æji afhverju er ég ekki með ykkur að klára þetta hefði kannski getað það ef að ég ætti heima í RVK, kannski ekki. Krummi var nú ekkert auðveldur til að byrja með. Leiðinlegt að hafa misst af þriðja árinu með krökkunum mínum, svo góður hópur. EN EN EN ég á yndislegan strák sem ég er búin að vera verkefnið mitt síðastliðið árið og verður næstu áratugina hehe. Svo verður nú bara gaman að kynnast fleira fólki sem ég verð með á næsta ári ( 2árs nemarnir) Skólinn verður massa erfiður því ég á ansi margar einingar eftir, með lítið barn og BÝ Á FOKKIN AKUREYRI !! en þetta mun takast... fyrr en seinna.
Við hjúin fórum svo á skíði á sunnudag, svoldið skrítið að skella sér á skíði þegar maður er kominn í svona mikinn vorhug eða sumarhug. Geggjað veður eða 10 stig og sól - ágætis færi, svoldið blautt. Er núna eldrauð á nefinu og kinnunum, vonandi breytist það í brúnku á næstu dögum tók ansi vel í lærin að skíða svona þegar maður var búinn að vera lengi. Svo í morgun vaknaði ég svona svoldið aum og fór í ræktina, nei nei þá var bodypump í tímanum. Hafði aldrei farið í það. SHIT EIGUM VIÐ AÐ RÆÐA ÞAÐ E-Ð. Hnébeygjur og aftur hnébeygjur ... ég skalf í restina, sveið illa mikið í lærunum af áreynslu. Góð tilfinning 
Get ekki beðið eftir að komast vestur, erum að fara suður á fimt fram á föst. Svo förum við vestur og verðum fram á sunn. Það er svo notalegt og afslappað að koma vestur. Ég gleymi alltaf símanum mínum og losa mig alveg við umheiminn einhvern vegin.
Svo er Krummi minn að verða eins árs, ég er svona sífellt að minna mig á þetta. Finnst það svo skrítið, svo fáránlega fljótt að líða. Allir dagar svo fljótir að líða, rennur saman í eina viku sem rennur svo saman í mánuð og svo ár. Þetta er skemmtilegasta ár sem ég hef upplifað, fylgjast með barninu sínu vaxa og dafna er yndislegt lífið verður ekki betra. Afmælisveisla verður í Hlíðargerði í RVK 3.maí, vil að sem flestir komi. Það er svo erfitt að hitta fólk í þessi fáu skipti sem við komum suður og þess vegna langar mig til þess að sem flestir komi og hitti okkur þarna.
Ekki spara kommentin píból !!
kv. Tinna vorglaða
»
18.04.2008 20:56:36 / brabra
Þá er það ákveðið, ég og Krummi förum suður á morgun. Útskriftarsýning hjá LHÍ á morgun kl 14 Ég er ekki búin að sjá Rögnu síðan í júní og ekki alla hina krakkana síðan 27. apríl sirka á síðasta ári !!! eigum við að ræða það e-ð... mætti halda að maður byggi í Ástralíu. Hlakka ekkert smá til að hitta krakkana og fínu verkefnin þeirra. Krummi kemur með mér svo að amma hans og afi geti hitt hann aðeins og passað hann. Einar ætlar að tana sig á skíðum á meðan, mig langar mongó mikið að djamma með krökkunum en dæmið gengur ekki alveg upp nema Einar komi suður líka, við tímum því ekki alveg. Kostar bara 12 þús önnur leiðin, Einar óbin að vera svona gamall og geta ekki hoppað. Einar gamli hehe... ég er nú bara 23 ára ung snót. ohh ég er svooooo spennt, varð að deila þessu með ykkur  heyrumst kv. Tinna Brá
»
16.04.2008 12:25:48 / brabra
Við Dóra komum til Köben kl 18:15, engin Berglind sjáanlega. Biðum aðeins og þar kom röltandi lítil snúlla með fjólublá og bleik gleraugu. Þarna voru dvergarnir þrír samankomnir aftur. 3 ár síðan ég hafði heimsótt Berglindi til Köben, skömm að segja frá því.
Á föstudagskvöldið var sko rok og rigning, algjör viðbjóður. Svona ekta Reykvískt veður - ekki norðlenskt Dóra matgæðingur benti okkur á steikhús, REEF and BEEF og þar fengum við okkur mojito og steik... nammi namm, svaka fancy bara... aðeins drukkið en Berglind þurfti að sækja bíl með dýnu handa Dóru. Dóra svaf í bílnum, nei hljómar þannig Frekar nice að vera á bíl í Köben, Berglind stóð sig bara vel að keyra í svona stórri borg. Það er sko 25 mín akstur frá strikinum/miðbænum að Holte þar sem hún býr, soldið mikið langt. Fórum snemma að sofa svo við gætum vaknað ofur snemma og fengið okkur morgunmat og arkað á strikið. Vorum þar í nokkra klukkutíma, ansi þreytt að ganga strikið í marga tíma og svo mikið af fólki svona á laugardegi. Var eiginlega ekki hægt að máta í HM. Fórum svo í Fields um 3 leitið og versluðum meira dáldið mikið verslað hehe
Fórum svo á svaka flottan Japanskan veitingastað sem heitir UMAMI, fengum vondan mojito en góðan mangókokteil. Smakkaði sushi í fyrsta skiptið, nokkuð gott bara drukkum svoldið þetta kvöld, engin ofurölvun samt.
Þetta var alltof stutt ferð því svo var ekkert gert á sun því við þurftum að vera komnar út á völl kl 12.
Gaman að hitta stelpurnar þó það hafi verið stutt, mér líður alltaf svo vel. Svo stór stelpa innan um þær hehe. Ég er sko 1,63 m og er samt stærri en þær 
Einar var hérna heima með Krumma, þeir áttu góðar stundir í kjarnaskógi og sáu kanínu. Svo var minn orðinn e-ð slappur og varð veikur með hita þegar hann kom heim. Svo mamman varð nú ansi áhyggjufull að vita af litla drengnum sínum veikum ennnnn Einar ofurpabbi gat sko alveg stjanað við strákinn sinn.
Kom svo í ljós í gær að drengurinn er með eyrnabólgu og búinn að vera með hana í einhvern tíma sagði læknirinn, það útskýrir svefnleysið og pirringin undanfarnar 2 vikur eða svo. Greyið kallinn ...
Núna er mongó veður ( takk Dóra) eða 9 stiga hiti og nice. EKki þetta ógeðis frost sem er búið að vera hérna. Vonandi er vorið komið ég er allavegana tilbúin fyrir það. Ætla sko út að labba á eftir .. fór út að hlaupa í gær, hélt ég gæti nú hlupið því ég er búin að vera í ræktinni í 4 mánuði núna stíft 4 sinnum í viku ... en nei nei mér fannst ég standa í stað bara upp þessar brekkur hérna, þær eru náttúrulega rosalegar þessar brekkur. ÉG hafði þetta nú af og hljóp í 35 mín og var alveg dauð eftir það svona er maður nú ekki í góðu hlaupaformi, það er greinilega ekki það sama og að vera í ræktinni.
kveðja Tinna Brá
»
10.04.2008 21:27:15 / brabra
6:30 vakna á sama tíma og vanalega 7.00 þvo hvíta bolinn og skella honum í þurrkara 7:01 fara í bað 7:30 gefa Krumma að borða 8:00 skipta á kúkableyju 8:10 klára að hafa mig til 8:30 bruna út á Akureyrarflugvöll 8:45 kveðja Krumma minn og Einar minn 9:40 lenda á Reykjavíkurflugvelli 9:45 Valli sækir mig ( viðhaldið, ég er ekkert að fara til köben) 10:00 Sjáland í Garðabæ, Designast aðeins og spjalla um eldhús 10:30 Smáralind að hitta Dóru sem ákvað að koma með fyrir klst síðan 10:40 Solveig kemur að sækja mig og Dóru. Já ég á góða vini  11.15 Keflavíkurflugvöllur - flugstöð Leifs Eiríkssonar... 11:45 rauðvínsglas 13:15 Flogið af stað til Köben 18:30 Lendi í Köben og knúsa Berglindi
Hitt fáið þið að vita seinna Það verður erfitt að kveðja strákana mína Það verður gaman að hitta Berglindi og Dóru. Nú og Solveigu og Völu líka
heyrumst seinna Tinna Brá
»
25.03.2008 21:22:42 / brabra
Munið þið eftir þessum sketch með Jóni Gnarr... með svona væmna rödd, kallaði hann á son sinn sem hét Páskar, Páskar minn ég og Einar höfum mikinn húmor fyrir þessu....
Úff hvað mér svíður í munnvikin, var að borða gómsæta appelsínu.
Páskarnir voru ansi notalegir, mamma, pabbi og Breki komu og voru hjá okkur. Við mæðgin vorum að vísu ansi "tussuleg" ( með þetta orð alltof mikið á heilanum). Vorum veik meira og minna í viku held ég. Svo það var bara legið í leti og étið súkkulaði. Fór svo einu sinni á skíði - svakalega skemmtilegar brekkurnar núna, fullt af skemmtilegum leiðum og geggjað færi. Gott veður og fullt af fólki, svaka stemming að fara á skíði hérna á AK. Mæli með því að fólk flykkist hingað í heimsókn og kíki á skíði eða bretti á meðan snjórinn er ...
Var svona að hugsa í dag - núna eru allir krakkarnir í ARK að hamast við að klára lokaverkefnið, svakalega gaman og erfitt núna hjá þeim. Sakna þess ótrúlega að vera uppi í skóla að massa verkefni og vera massa stressuð að fara að skila. Já ég get ekki beðið eftir að byrja aftur í haust, það versta er að ég missi af hópnum mínum og þarf að hanga með 2 árs nemum, ferlega lélegt sko. EKki nógu töff sko .hehe ... En í staðinn þá varð ég svo stolt í dag af litla stráknum mínum, hann stóð upp alveg sjálfur. Mér brá ekkert smá, var í tölvunni og leit svo á hann og minn bara staðinn upp svaka flottur. Ég rauk til og fór til hans svo að hann myndi ekki detta, rétt greyp hann svo er hann búinn að vera að standa upp við sjónvarpið í dag og svo reynir hann á miðju gólfi, fer svona í brú.... hrikalega krúttað Það er svo gaman að eiga svona mikinn snilling sem er síbrosandi allan daginn og rífandi kjaft þess í milli. 17 dagar í köben og 12 dagar í árshátíð, best að fá sér vatn  ble á me
»
09.03.2008 21:12:52 / brabra
Nennir einhver að lána mér bakið sitt og hálsin sinn? ég er orðin svo þreytt á því að vera "öryrki" !! sem ég nú reyndar er , 9% ... EN það kallast nú víst ekki að vera öryrki
Málið er að ég stunda líkamsrækt og fer í nudd 1-2 í viku en aldrei líður sá dagur að mér líður bara djöfulli vel í líkamanum... ohh ég er svo þreyttt á þessu ótrúlega leiðinlegt. Þess vegna er ég vælandi núna því mig langar svo að vera hraust í líkamanum, þið sem eruð það skulið vera þakklát, þetta er ömó. Get ekki setið lengi, vakna alltaf stíf, stöðugt með vöðvabólgu og hausverki.
Vorum að koma að "sunnan" hehe, fórum í fermingu og hittum tengdó. Reyndi að finna mér árshátíðarkjól, gekk ekki þar sem ég hafði bara klukkutíma. Mig langaði svo í Ikea, hitta fleira fólk, kaupa mér fleiri föt og gera margt annað. Aldrei tími ...
Það sem er á döfinni er páskar : mamma, pabbi og Breki verða hjá okkur. Farið verður á skíði og í bíó.. e-ð meira kósý.
5-6. apríl förum við á árshátíð á Mývatn, sólarhringur og Krummi verður í pössun yfir nótt í fyrsta skipti mamma og pabbi sjá um það.
11-13. apríl fer ég svo ALEIN til Köben - það verður örugglega mjög gaman og líka erfitt. Erfitt að fara frá honum Krumma mínum en við höfum bæði gott af því.
2. maí verður svo aðal töffarinn eins árs allir að taka frá þann dag, Það verður afmælisveisla í Rvk.
Sumrinu verður svo eytt í ferðalög og bátsferðir. Fengum tjaldvagninn hjá ömmu og afa gefins og svo erum við að fara að kaupa lítinn bát með pabba
í júní förum við svo í sólarferð og slöppum af...
Svona verður næstu mánuðir alltaf svo gaman hjá okkur, Krummi mun væntanlega taka upp á ýmsum kúnstum á næstunni. Farinn að skríða útum allt, standa upp með borðum nánast alveg, rífa kjaft vera stór og klappa. Voða gaman ,,,,
Jæja heyrumst, endilega kommentið og segið mér að þið séuð að lesa. kv. að norðan Tinni litli
»
26.02.2008 11:36:22 / brabra
Við mæðgin erum núna fyrir vestan á Hótel Mömmu Svo notalegt að koma í hólminn að slappa af, Krumma finnst svo gaman að leika við Breka og láta dekra sig af ömmum og öfum. Einar er í US and A í vinnuferð fram á laugardag. Boston, Miami, Pittsburgh og fleiri borgir. Við öfundum hann ekki neitt nei nei Gaman hjá honum.
Við mútta erum svo að fara á Narfeyrarstofu í hádegismat bráðum, nammi namm, svakalega góður maturinn þar.
Heyrumst seinna kv. að vestan
»
20.02.2008 18:44:02 / brabra
Hannes hefur sennilega aldrei verið eins rosalegur og núna.. Fer út að hlaupa á laugardagskvöldi (segir nú reyndar meira um það hvað hann hefur ekkert að gera). EN það er önnur ella, núna er ég komin með svo mikið ÆÐI að ég á erfitt með að labba bara en ekki hlaupa. Frekar kjánalegt, fór út með vagninn í fyrradag byrjaði svo allt í einu bara að hlaupa ... ekki í hlaupafötum alveg eins og fífl. Svo erum við í gönguhóp á mánudagskvöldum og ég átti svo erfitt með að labba bara, fannst ég ekki fá neitt út úr þessu. Þess má geta að ég fór í ræktina kl 8 um morgunin, klst göngu yfir daginn og svo í kvöldgönguna. Smá æsingur í gangi æsingurinn reyndar fer alveg eftir því hvernig veðrið er. Verð alveg hrottalega löt þegar það er snjór, hálka og frost.
Ég er sem sagt búin að vera í tímum núna alltaf kl 8:15, fer með drenginn í barnapössunina. Hann var fyrst í dag að hætta að væla á meðan. En að máli málanna, það er sem sagt 50 ára gamall kall, já 50 ára er gamalt... hann er sem sagt að kenna stundum þarna. Maðurinn er svo fallega stæltur, alltaf í svona þröngum hlaupabuxum, ji dúdda það sem maðurinn er með flottan neðri part hehe við erum að tala um 50 ára gamlan mann, svona hávaxinn og flottur... Þetta er ástæðan fyrir að ég nenni að mæta. Konan hans er sko svaka bomba líka, ég ætla sko að vera svona þegar ég verð 50 ára. !!!
Ég er núna að leita mér að vinnu því drengurinn er kominn með dagmömmu 1. apríl. Ég er náttúrulega bara að rotna hérna heima gjörsamlega, verð að komast út og hitta fólk.
á döfinni er svo ferð vestur og suður, voga mér ekki að fara austur því ég kem að norðan. Svo er köben ferð á teikniborðinu, er að fara að hitta hana Berglindi mína yfir eina helgi ALEIN !! OMG það verður erfitt að skilja my precious eftir þetta verður sennilega 11-13.apríl, svo er árshátíð SC 5-6. apríl á Mývatni. Famillíos kemur um páskana svo það er nóg á döfinni núna thank god, það var komin myglulykt af mér. 

Hérna er mynd af Krummakrúttinu, rifna úr monti yfir að standa sjálfur.
kveðja frá Akureyri
»
15.02.2008 10:25:23 / brabra
Þegar hún maskar á sér augun, húúúún er að fará ball
Ég átti svakalega "góðan" dag í gær. Eftir að ég varð ófrísk og svo með barn á brjósti, kallast víst brjóstaþoka, þá hef ég verið mjög ólík sjálfri mér. Ég sem var alltaf svo pottþétt með allt á hreinu og svona. .. á sumum sviðum allavegana hehe. Núna er ég hálftíma að finna veskið mitt, símann og fleira áður en ég fer út úr húsi. Veit aldrei hvar neitt er. ÉG var að taka til um daginn og gekk svo vel frá íþróttatöskunni minni að ég veit EKKERT hvar hún er... búin að leita í 1-2 vikur af henni. Í kjölfarið tók ég eftir því að hleðlsutækið mitt var horfið, búin að ganga frá því á einhvern rosalega góðan stað... svo sama dag þá finn ég ekki visa kortið mitt, hef sennilega misst það samt. Var nýbúin að nota það og gleymdi því ekki á staðnum. Jæja við förum í svaka notalegheit nudd og pott í tilefni dagsins hans Einars gamla 28 ára. Vitandi að vera ekki með visa kortið,ég var sko að bjóða honum. Ætlaði nú bara að redda mér og fá að borga seinna ( eins hallærislegt og það nú er) tók vel í það daman svo ég slapp daginn eftir er ég heima, bíllaus með batteríslausan gsm síma og drengurinn búinn að slefa heimasímann í kaf svo hann virkaði ekki !!! og ég þurfti að borga nuddið og það... en ég gat það ekki - ég komst á netið og búið...
váááá hvað mér leið kjánalega - Einar spurði mig hvort ég hefði gleymt heilanum einhvers staðar, ég er náttúrulega búin að leita að honum út um allt og finn hann ekki.
þá fer maður bara og hlustar á "where is my mind" með pixies og kemur sér í stuð fyrir kvöldið þar sem við erum að fara út að borða og leikhús, þetta er sko afmælisvikan hans einars. Vikan sem visa kortið mitt týndist... enn heppilegt hahahaha. kveðja Tinna Brá
»
28.01.2008 09:06:04 / brabra
Þegar maður er farinn að hlaupa út í búð og kaupa snakk handa barnapíunni sinni þá er maður orðinn gamall... Fórum á útgáfutónleika á föstudagskvöld með Hjaltalín, ansi skemmtileg hljómsveit. Mér finnst svo frábært að það séu einhverjir sem halda áfram að spila á hljóðfæri eftir grunnskóla og geti notað þau á svona skemmtilegan hátt. Þau spiluðu á óbó, klarinett,harmonikku,fiðlu og hljómborð. Ótrúlega skemmtileg stemming þar á ferð. Fór svo bara heim eftir tónleikana en Einar "fékk" að djamma með bankavinum sínum sem komu hérna í hrönnum á bankafótboltamót e-ð... það hefur aldeilis verið fjör hjá þreyttu húsmæðrunum á Akureyri þessa helgina , sussss ... ég er náttúrulega ekki í þeim hóp Allt morandi í bankaköllum sem kunna e-ð í fótbolta. Ég er voðalega dugleg að hlusta á útvarpið hérna heima - hlusta á x-ið, var að dansa fyrir Krumma.. honum finnst það svo gaman og haldið þið ekki að tjellingin hafi komist í svona rosalegan gír... var að hlusta á uppáhalds lagið mitt með FM Belfast svo kom Pardon me - ég hélt að þakið ætlaði að fjúka af húsinu. Það væri svo gaman að halda partý og hafa græjurnar í botni læk den tíd... those were the days  Já laugardagurinn var svo bara rólegur - fórum svo í svakalega flottan dinner hjá Hönnu og Andra, fengum humarsúpu og lambafille ansi fancy hjá þeim hittum þar lækna, markaðstjóra og bankaskuttlu... tókum drykkjuleik og fórum í sjallann, þangað hafði ég aldrei áður komið. Var bara eins og ég bjóst við, svona eins og Broadway bara. Þar var sixties að spila, hvernig datt þeim það í hug, shit það var party !!!! NOT !!!! Drengurinn er búinn að vera veikur/kvefaður í tæpar tvær vikur, sefur bara inni og sefur svo illa þannig = pirraður. Núna er hann að fara út í vagn og sefur vonandi betur. Mamman þarf nebblega að leggja sig líka  Heyrumst kv. Mama mama mama
»
Síður: 1 2 3 ... 20
|
|